Að hámarka árangur í íþróttum
Hafið þið reynslu af því að starfa með íþróttafólki?
Í starfi okkar sem kírópraktorar höfum við unnið mikið með íþróttafólki, allt frá áhugamönnum til afreksíþróttafólks. Í gegnum árin höfum við séð og fundið að áherslurnar hafa breyst þegar kemur að meðhöndlun og eftirfylgni hjá fólki sem er undir líkamlegu álagi marga daga í viku. Hvort sem það er íþróttaiðkun eða vinna þá hefur álag áhrif á okkur öll og með tímanum þá getur álagið farið að hafa slæm áhrif á líkamann okkar og jafnvel hugarfar. Ef það eru einhverjir verkir eða vandamál til staðar þá er fyrsta og mikilvægasta markmiðið að minnka verkina og koma viðkomandi aftur á þann stað að geta æft og unnið af fullum krafti. Í framhaldi þá gerum við okkar besta til þess að ná verkjunum alveg í burtu og gera meðferðaráætlun sem lágmarkar líkurnar á því að vandamálið taki sig upp aftur.
Eru einhver meiðsli algengari en önnur?
Allar íþróttir hafa mismunandi álag á ólíka staði líkamans. Sumar íþróttir eru mjög fjölbreyttar og með marga álagspunkta, aðrar eru einhæfari og álagspunktarnir færri. Ingó hefur spilað badminton í 36 ár og badmintonfólk reynir mun meira á aðra hlið líkamans en hina. Rannver er uppalinn fótboltamaður, varð íslandsmeistari með Breiðablik, og það sama gildir um fótboltann að hann reynir mun meira á annan helming líkamans en hinn. Þetta á við um flestar íþróttir en ekki allar. Þegar við nálgumst meðhöndlun á íþróttafólki þá skiptir miklu máli hvaða íþrótt það stundar, hvar álagið er mest og hvernig meðferðinni er háttað til þess að ná sem mestum árangri hraðast. Algeng vandamál sem íþróttafólk leitar til okkar með eru bak- og hálsverkir, vandamál í mjöðmum, hnjám og ökklum, vöðvaspenna, sinatengd einkenni og álagsmeiðsli.
Hvernig er hefðbundin meðhöndlun íþróttafólks hjá kírópraktor?
Meðferð hjá okkur við íþróttameiðslum og álagsmeiðslum byggir fyrst og fremst á nákvæmri skoðun og samtali. Við skoðum hreyfigetu og líkamsstöðu, finnum bólgur og eymsli. Í flestum tilvikum er hægt að fá góða greiningu á vandamálinu þannig. Við heyrum stundum að fólk sé stressað eða jafnvel hrætt við að fara til kírópraktors en það er alveg óþarfi og fyrsti tíminn reynist öllum auðveldur. Í okkar tilfelli meðhöndlum við ekkert fyrr en við erum vissir um það hvað við erum að eiga við og að við getum náð árangri með meðferðinni. Það sem hefur reynst okkur einstaklega vel er að við höfum aðgang að myndum sem hafa verið teknar hjá Domus medica, Orkuhúsinu og Hjartavernd. Hafi einhverjar myndir verið teknar þar þá skoðum við þær og lesum skýrslur sem til eru. Ef að greiningin er óljós, engar myndir hafa verið teknar áður og við teljum að brýn þörf sé á þá getum við tekið röntgenmynd af viðkomandi líkamspart. Mikilvægur þáttur meðferðarinnar er að greina undirliggjandi orsakir vandans, til dæmis ójafnvægi í vöðvastyrk eða takmarkaða hreyfigetu. Með því að taka á þessum þáttum erum við ekki bara að reyna að draga úr einkennum heldur einnig að draga úr líkum á endurteknum meiðslum.
Þegar við erum vissir um að vandamálið sé fundið og að við getum hjálpað við að laga það þá hefst meðferðin. Meðferðin miðar að því að auka liðleika, minnka bólgur og auka styrk. Liðlosun, mjúkvefjameðferð, teygjur og sértækar æfingar eru algengar aðferðir sem við notum, það fer eftir þörfum hvers íþróttamanns.
Það er okkar upplifun að sífellt fleira íþróttafólk leiti til kírópraktors reglulega yfir árið til þess að líða betur og fá skoðun á stoðkerfinu. Það er ekki bara að leitast eftir því að losna við verki heldur reyna að fá hjálp og ráðgjöf til þess að forðast meiðsli og hámarka álagið sem það þolir við æfingar. Í okkar starfi finnst okkur eðlilegt að fólk geti komið í skoðun án þess að eitthvað sé að, fengið ráðgjöf og svo meðhöndlun ef og þegar hún á við.
Markviss eftirfylgni getur bæði stutt við bataferli og haft jákvæð áhrif á frammistöðu. Ef stoðkerfið er í sem bestu mögulegu ástandi þá er betra tækifæri fyrir bætingu og hámarksárangur í viðkomandi íþróttagrein.
Hvaða skoðun hafið þið á samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir?
Við erum í samskiptum við og vinnum náið með bæði sjúkraþjálfurum, nuddurum, læknum og styrktarþjálfurum. Við teljum að bestur árangur náist þegar við vinnum í nánu samstarfi við þá aðila sem koma að íþróttafólkinu. Slík teymisvinna tryggir að meðferðin og endurhæfingin styðji hvert annað. Hver stétt hefur sína styrkleika og hlutverk við að sinna viðkomandi. Þegar allir vinna saman eru meiri líkur á árangri og íþróttamanneskjan getur frekar einbeitt sér að æfingunum og náð hámarksárangri til lengri tíma. Uppi á landi þá störfum við á Kírópraktorstofu Íslands í Kópavogi og sjúkraþjálfarastofunni Tindur í Hveragerði. Þegar við erum í Vestmannaeyjum þá störfum við í Allra heilsa á Strandvegi.
Við bjóðum alla þá sem vilja skoðun á stoðkerfinu velkomna, íþróttafólk og aðra jafnt. Það þarf ekki að bíða þangað til verkirnir og vandamálin eru komin heldur frekar að panta tíma og fá ráðgjöf um það hvernig best er að minnka líkur á verkjum og auka vellíðan og endingu.