Heildræn nálgun að bættum lífsgæðum

Kírópraktík er heilbrigðisþjónusta sem einblínir á greiningu, meðferð og forvarnir á vandamálum í stoðkerfi líkamans, sérstaklega hryggnum. Markmiðið er að bæta hreyfigetu, draga úr verkjum og styðja við náttúrulega getu líkamans til að starfa á sem bestan hátt.

Kírópraktorar skoða hvernig hryggurinn og taugakerfið vinna saman, þar sem truflanir í liðamótum geta haft áhrif á líðan og virkni líkamans. Með mjúkhentum aðferðum leitast kírópraktorinn við að endurheimta eðlilega hreyfingu í liðum og draga úr bólgum og spennu í líkamanum. 

Meðferð hjá kírópraktor getur gagnast fólki með bak- og hálsverki, höfuðverki, vöðvabólgu og ýmis önnur stoðkerfisvandamál.

Auk meðferðar fá skjólstæðingar ráð um líkamsbeitingu, æfingar og lífsstíl til að fyrirbyggja endurkomu einkenna

 Kírópraktík er því heildræn nálgun sem miðar að því að bæta lífsgæði með því að styðja við heilbrigða starfsemi líkamans.