Ingólfur Ragnar Ingólfsson
Ingó er fræddur í Reykjavík 1980. Hann útskrifaðist frá Palmer College of Chiropractic í Iowa í Bandaríkjunum árið 2006 og er því einn reynslumesti kírópraktor landsins.
Ingó hefur mestan áhuga á að hjálpa fólki að losna við verki en einnig að hjálpa til við að bæta líkamsstöðu, auka liðleika og fyrirbyggja vandamál og verki.
Hann viðheldur og bætir við þekkingu sína með því að sækja ráðstefnur og námskeið bæði erlendis og heima fyrir.
Sem unglingur var Ingó slæmur í baki og ákvað að verða kírópraktor eftir að hafa fengið hjálp með þeirri meðferð.
Hann hefur stundað íþróttir alla sína tíð og telur hreyfingu grundvallaratriði í heilbrigðum lífstíl og stoðkerfi. Sjálfur stundar hann badminton, spartan hlaup, golf og lyftingar.