Kírópraktík barna – þegar lítill líkami þarf mikla umhyggju
Það er fátt sem reynir meira á foreldra en barn sem virðist óvært, grætur mikið, á erfitt með að sofa eða glímir við óþægindi frá meltingarveginum. Kveisa, loft í maga, hægðatregða og almenn spenna í líkamanum eru algengar áhyggjur hjá foreldrum ungra barna.
Þegar barn er óvært leita foreldrar eðlilega leiða til að hjálpa því. Þar getur barna kírópraktík komið til umræðu.
Hvað felst í barna kírópraktík?
Meðferð hjá kírópraktor með sérþekkingu í barna kírópraktík, á að taka mið af því að barn er ekki lítill fullorðinn einstaklingur. Líkaminn er í örum þroska og meðferð þarf því að vera sérstaklega mild, einstaklingsmiðuð og aðlöguð aldri og þroska barnsins.
Í stað þess að „laga“ eitthvað með kröftugum hreyfingum er áherslan oft á mjög létta snertingu og hreyfingu, auk þess að skoða heildarmyndina: hreyfigetu, vöðvaspennu, líkamsstöðu og hvernig barnið hreyfir sig. Þegar kemur að börnum beitum við aldrei hnykkingum, heldur ákveðnum þrýstipunktum á rétt svæði, sem framkallar slökun í stoðkerfi barnsins.
Markmiðið er ekki að meðhöndla ákveðin einkenni með kírópraktík, heldur að meta barnið vandlega og sjá hvort örugg og viðeigandi meðferð geti stuðlað að betri líðan.
Það mikilvægasta er alltaf að hlusta á barnið, taka áhyggjur foreldra alvarlega og velja meðferð sem er bæði örugg og viðeigandi fyrir hvert barn.
– Alexandra Ósk Ólafsd. Kírópraktor