Þuríður (Rúrý) Guðmundsdóttir
Rúrý - Þuríður Guðmundsdóttir útskrifaðist árið 2015 sem Doctor of Chiropractic frá Life University í Atlanta, Georgíu. Á yngri árum stundaði Rúrý fimleika af miklum krafti í um 20 ár og upplifði ýmiss konar meiðsli á þeim tíma, þar á meðal alvarleg bakvandamál. Hún kynntist kírópraktík árið 2006 þegar kírópraktor hjálpaði henni að takast á við þessi vandamál og ná góðum bata.
Segja má að kírópraktík hafi haft mikil og jákvæð áhrif á líf hennar sem varð til þess að hún ákvað að leggja stund á nám í kírópraktík. Rúrý hefur mikin áhuga og þekkingu á öllu sem snýr að heilsu og heilbrigðum lífsstíl og getur hjálpað þér að bæta lífsgæði, ná heilsumarkmiðum ásamt því að vinna bug á verkjum með góðum ráðum og kírópraktík.
Hún er einnig formaður Kírópraktorfélags Íslands.