Þjónusta
Fyrsti tíminn
Allt sem er gert í fyrsta tímanum þínum á Esjan kírópraktík er ætlað til þess að vita hvernig þér líður og hvað sé hægt að gera til þess að hjálpa þér.
Skoðunin og allar mælingar eru sársaukalausar og fyrsta heimsókn þín ætti að reynast þér einföld og þægileg.
Grunnupplýsingar / Trúnaðarskýrsla
Þegar þú kemur á stofuna/Esjan kírópraktík, þá færðu blað með nokkrum spurningum sem varða ástæðu þess að þú leitar til okkar.
Spurningarnar eru einfaldar og ætlaðar til þess að kírópraktorinn geti sett sig inn í stöðuna á sem bestan hátt.
Viðtal
Þegar kírópraktorinn hefur lesið yfir upplýsingarnar sem þú gafst þá ræðið þið saman í einrúmi og hann spyr nánar út í atriðiði sem hann þarf til að fá skýrari og nákvæmari sýn á bæði vandamálið og mögulega lausn.
Líkamsstöðupróf
Eftir viðtalið tekur kírópraktorinn mynd af líkamsstöðunni þinni. Líkamsstaðan getur haft mikil áhrif á stoðkerfisverki og almenna líðan og mikilvægt að sjá hvernig hún er í upphafi meðferðar.
Í framhaldi er hægt að taka nýjar myndir reglulega til þess að meta árangurinn og sjá hvort líkamsstaðan er að lagast.
Skoðun
Kírópraktorinn fer yfir þau atriði sem um var rætt í viðtalinu og metur þau með höndunum. Hann metur hreyfigetu, finnur stífa vöðva og þreyfar eftir bólgum, sem dæmi.
Á stofunni eru allir kírópraktorarnir með margra ára reynslu í að finna og meta þessi atriði og hvernig best er að nálgast þau.
Skannamælingar
Þegar búið er að meta líkamsstöðuna og framkvæma skoðun eru gerðar 2 mælingar á bakinu. Eins og áður segir eru mælingarnar sársaukalausar en gefa mikilvægar upplýsingar um hvert og hvar vandamálið er.
Fyrsta mælingin er hitamæling sem gefur til kynna hvort einhverjar bólgur séu í bakinu. Seinni mælingin er mæling á vöðvaspennu og hvort það sé ójafnvægi á milli vöðvanna hægra megin og vinstra megin í bakinu. Ef bakvöðvinn öðru meginn er stífari en hinum megin þá er það vísbending sem vert er að skoða.
Að lokum er framkvæmd mæling á púlsinum sem tekur um 3 mínútur. Með því að mæla hvíldarpúls fást upplýsingar um HRV ( heart rate variability ) sem tengist úthaldinu og orkunni þinni yfir daginn.
Röntgen myndartaka
Þegar viðtalið, skoðunin, líkamsstöðumyndin og skannamælingarnar eru búnar þá hefur kírópraktorinn nóg af upplýsingum til þess að taka ákvörðun um hvort þörf sé á röntgenmyndatöku. Svoleiðis ákvörðun er alltaf tekin með hagsmuni viðskiptavinarins að leiðarljósi.
Á þeim myndum er til dæmis hægt að mæla hryggskekkju, snúning á mjaðmagrind, lengd fótleggja, kölkun og slit í hrygg ásamt öðru sem hjálpar kírópraktornum að vinna á sem öruggastan og nákvæmastan hátt.
Niðurstöðutími - Kynning
Í tíma tvö er farið yfir niðurstöðurnar úr tíma eitt og framhaldið ákveðið. Kírópraktorinn útskýrir öll þau atriði sem máli skipta og hvort hann telji sig geta hjálpað þér að ná árangri. Við höfum áratuga reynslu og höfum náð miklum árangri með okkar skjólstæpinga. Við teljum það einnig einn af okkar helstu styrkleikum að við erum í góðu sambandi við aðrar heilbrigðisstéttir, t.d. sjúkraþjálfara og vinnum með þeim að lausn vandamála þegar við á.
Ef niðurstöðurnar benda til þess að kírópraktík geti leyst vandamálið þá er gerð meðferðaráætlun, oft 2-4 mánuðir og í lok hennar eru gerðar mælingar til þess að meta árangurinn. Í þeim tíma er svo metið með framhaldið.
Niðurstöðutími - Viðtal
Eftir kynningu fer hver og einn og hittir sinn kírópraktor í sinn niðurstöðu tíma. Þar fer kírópraktorinn yfir niðurstöður mynda og mælinga frá fyrstu heimsókn og ákvarðar með viðkomandi áframhaldandi meðferðarplan.